SÖNGKONA
MENNINGARMIÐLARI
Ástríðan
Að syngja og bregða á leik. Miðla sönglist og menningu út um allt, upp og niður, út og suður, teygja í sundur og toga.
Vera í náttúrunni. Skapa samfélag. Hugleiða.
Tengja saman fólk og málefni, kynnast, borða kanilsnúð, helst sykurlausan. Læra, kenna og miðla, hlæja, gleðjast, tárast og dansa til að gleyma inn á milli.
- Já og stofna kór atvinnusöngvara á Íslandi.
„Guja Sandholt tókst á við fjölbreytt verkefni hér heima og erlendis á liðnu ári (2019) og sýndi eftirtektarverða dramatíska breidd. Á Óperudögum tók hún m.a. þátt í flutningi verka Davids Lang, The Little Match Girl Passion og Death Speaks, og hún vann listrænan sigur með flutningi sínum á öróperunni King Harald’s Saga eftir Judith Weir á Reykholtshátíð.“
- Rökstuðningur dómnefndar Íslensku tónlistarverðlaunanna vegna tilnefningar 2019
„Guja söng líka af aðdáunarverðum krafti og tæknilegu öryggi nokkur lög eftir Jórunni Viðar. Síðasta lagið, Vökuró, sem Björk Guðmundsdóttir gerði heimsfrægt, var einkar hrífandi í meðförum Guju. Það var innilegt, brothætt og angurvært; yfir því var draumkennd, nostalgísk stemning sem var afar sannfærandi.“
- Jónas Sen um tónleika á Sönghátíð
„Nefna veròur sérstaklega Guju Sandholt sem var i aðalhlutverki konunnar í dulargervinu. Bæði var söngurinn magnaður, tær og kraftmikill og svo var leikræn frammistaða einstaklega trúverðug.“
- Jónas Sen um Fidelio - atlaga að óperu
„Tónlistarviðburður ársins úr flokki hátíða eru Óperudagar í Reykjavík en með fádæma framtakssemi og sterkri listrænni sýn hafa stjórnendur Óperudaga sýnt fram á nýja möguleika og hinar fjölbreyttustu birtingarmyndir óperuformsins, auk þess að fara nýstárlegar leiðir í að ná til og heilla áhorfendur.“
- Rökstuðningur dómnefndar Íslensku tónlistarverðlaunanna vegna tilnefningar 2018